Fréttir

„Allir vinna“ – Tímabundin hækkun á endurgreiðslum VSK nú fallin niður

„Allir vinna“ – Tímabundin hækkun á endurgreiðslum VSK nú fallin niður

Í kórónuveiru faraldrinum var gripið til þeirra ráðstafana til að bregðast við efnahagsástandinu að hækka endurgreiðslu virðisaukaskatts, úr 60 % í 100%.

Þann 1.9.2022 fór endurgreiðsla vsk af vinnu á verkstað aftur niður í 60 % eins og fyrir faraldur.

Þess má geta að endurgreiðsla vegna reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis féll niður frá og með 1.7.2022.

Hleðslustöðvar bifreiðar

Á tímabilinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023 fæst endurgreiddur virðisaukaskattur vegna kaupa og vinnu við uppsetningu hleðslustöðva fyrir bifreiðar í eða við íbúðarhúsnæði.

 

https://www.skatturinn.is/atvinnurekstur/covid/vsk-endurgreidslur/